Loading Events

« All Events

Stjórnendur þurfa ekki fleiri fundi – heldur betri samtöl

29. apríl @ 09:00 - 09:45

Stjórnendur í dag starfa undir miklu álagi og mæta sífellt fleiri verkefnum, áherslum og væntingum. Tíminn er knappur og hætta á að samskipti verði fyrst og fremst stutt og verkefnamiðuð. Lausnin er því ekki endilega fleiri fundir, heldur betri samtöl.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig markviss og innihaldsrík samtöl geta styrkt samstarf, aukið skýrleika og stuðlað að betri árangri.

Byggt er á hugmyndafræði Five Conversations og því hvernig stjórnendur geta nýtt hana til að eiga samtöl sem skipta raunverulega máli.

Hver verður með okkur

Vaka Ágústsdóttir, hjá VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is
Hún er með meistaragráðu í vinnusálfræði (M.Sc.) frá Háskóla Íslands og yfir 15 ára reynslu af fjölbreyttum hlutverkum innan mannauðs og stjórnunarráðgjafar.

Hún starfaði áður í mannauðsmálum hjá LS Retail og sem mannauðsstjóri hjá IKEA á Íslandi.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni

 

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

Venue

  • Á vefnum