Loading Events

« All Events

Sáttamiðlun á vinnustöðum

28. apríl @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig getum við nýtt sáttamiðlun á vinnustöðum til að draga úr ágreiningsmálum og deilum sem upp geta komið á vinnustöðum.

Fjallað er um það hvers vegna er mikilvægt fyrir stjórnendur að vera meðvitaðir um áhrif ágeiningsmála og hvað er hægt að gera til að grípa sem fyrst í taumana til að leysa slíkan ágreining.

 

Hver verður með okkur?

Lilja Bjarnadóttir, sáttamiðlari og lögfræðingur.

Hún hefur víðtæka þekkingu á sáttamiðlun og er jafnframt eigandi og stofnandi Sáttaleiðarinnar og einn af stofnendum og kennurum Sáttamiðlaraskólans.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni
  • Sjálfsforysta

 

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

Venue

  • Á vefnum