- This event has passed.
Lífeyrismálin okkar allra – hvað er gott að vita?

Fyrir tæpum tveimur árum síðan vorum við með Dokkufund um lífeyrismálin okkar allra og vegna fjölda áskorana ætlum við að halda sambærilega fund núna. Við tökum sem sagt púlsinn á lífeyrismálunum. Hvernig virkar lífeyrissjóðakerfið okkar, hvað getum við gert núna til að hafa einhver áhrif á réttindi okkar í framtíðinni?
Nokkrar spurningar sem við leitum svara við:
- Hvað þarft þú að vita til að fá yfirsýn yfir þín réttindi?
- Getum við haft einhver áhrif á lífeyrisréttindin?
- Hvað getur þú gert núna til að tryggja þín réttindin?
Hver?
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Sólveig Hjaltadóttir , fræðslustjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Misstir þú af fundinum?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.