Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Er nauðsynlegt að hrósa starfsfólki? Og ef svo, afhverju?

10. janúar 2025 @ 09:00 - 09:45

Hefur þú fengið hrós á síðustu 7 dögum? Hefur þú hrósað samstarfsfólki á síðustu 7 dögum?

Rannsóknir benda til að þeir sem upplifa að þeir fái það hrós sem þeir þurfa í sínu starfi, sýni meiri helgun, séu ólíklegri til að leita sér að öðru starfi og tengist almennt vinnustaðnum mun betur.

Á Dokkufundinum fáum við sjá hversu mikils virði hrósið er 💛

Hver verður með okkur?

Auðunn Gunnar Eiríksson, vottaður styrkleika þjálfari hjá Gallup, BA í sálfræði. Auðunn hefur sl. 20 ár starfað í mannauðsmálum, sem sérfræðingur, ráðgjafi og mannauðsstjóri og er í dag stjórnenda og vinnustaðarrágjafi hjá Gallup.

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

  • Date: 10. janúar 2025
  • Time:
    09:00 - 09:45
  • Event Category:

Venue

  • Á vefnum