Gögn eru oft á tíðum vannýtt auðlind en fátt er verðmætara í rekstri fyrirtækja og stofnana í nútíma viðskiptaumhverfi en gögn og það sem meira er þau eru oft mun aðgengilegri og nærtækari en okkur grunar. Mikilvægi þeirra er óskorað þegar kemur að því að taka upplýstar ákvarðanir, finna bestu lausnirnar og nýtja fjármuni sem allra best.
Námskeiðið fjallar almennt um ferlið frá því að hugleiða hvaða og hvernig gögn geta hjálpað til við að skilja viðfangsefni okkar betur og til þess að gögn eru sótt, unnin, túlkuð og setja fram. Einnig er fjallað um mikilvægi þess að koma til skila þeim skilaboðum sem felast í gögnunum og hvernig við getum stutt við þau með réttri framsetningu. Hver er áhorfandinn (fyrir hvern eru gögnin) er það stjórn, framkvæmdastjórn aðrir sérfræðingar og kiptir það máli varðandi framsetningu gagna?
Á námskeiðinu verður einnig farið stuttlega farið yfir gagnagreiningar og helstu tölfræðilegu aðferðir þeirra.
Víðir hefur leitt starf Orkuveitu Reykjavíkur í virðisaukandi greiningum á launa- og mannauðsgögnum. Í starfi sínu hefur Víðir haldið námskeið og fyrirlestra um gögn í fyrirtækjum og þátt gagnagreininga við að bæta ákvarðanatöku innan fyrirtækja. Víðir og mannauðsteymi OR samstæðunnar hefur þróað ýmsar greiningar er varða til að mynda jafnréttismál innan fyrirtækja. Gagnaöflun og greiningar á stöðu ólíkra hópa innan fyrirtækisins hefur verið leiðandi í mótun úrbótaverkefna sem ekki blöstu við án þess að rýnt væri í gögnin.
30. september 2020 – kl. 900 – 12.00.
Í Kringlunni, Arion banka salurinn á 2. hæð – inn af útibúinu. Bjartur og fallegur salur á bezta stað.
Almennt verð er kr. 39.000 EN fyrir starfsmenn aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 31.200 – OG – ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 28.100 fyrir hvert sæti til starfsmanna aðildarfyrirtæka og kr. 35.100 til annarra.
Morgunverður að hætti Natura innifalinn.