- This event has passed.
Erfðaréttur 101
9. nóvember 2023 @ 09:00 - 09:45
Vilt þú vita hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Hvaða reglur gilda og hverju er hægt að breyta?
Á Dokkufundinum verður farið yfir meginreglur erfðalaga og leitast verður við að svara helstu spurningum sem vakna varðandi erfðamál og hvaða reglur gilda um erfðaskrár og kaupmála.
Hver?
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður
Elín er stofnandi fyrirtækisins BÚUM VEL, sem er sérhæfð lögfræðiþjónusta vegna búsetuskipta. Þá veitir hún viðskiptavinum stuðning og ráðgjöf við dánarbússkipti og ýmsa löggerninga á sviði erfðaréttar. Fyrirtækið veitir nýja tegund þjónustu á íslenskum fasteignamarkaði.
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.