Hvaða áskorunum stöndum við frammi fyrir þegar kemur að uppbyggingu fræðslu, eftirfylgni og árangurs. Hvernig metum við árangur og sköpum hvata hjá starfsfólki til að sækja sér þekkingu í 650 manna fyrirtæki þar sem meðalaldurinn er 22 ár og stærstur hluti starfsfólks er í hlutastarfi?
Á Dokkufundinum verður farið yfir vegferð og innleiðingu stafrænnar fræðslu, helstu áskoranir, árangur og ávinning hjá Domino’s á Íslandi, sem nýlega hlaut viðurkenninguna menntasproti ársins sem veitt er af Samtökum Atvinnulífsins.
Snorri Jónsson, mannauðsstjóri og Sigurbjörg Magnúsdóttir, fræðslustjóri hjá Domino’s
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.