Mörg þráum við að verða sýnilegri í starfi, taka meira pláss og sækjast eftir nýjum áskorunum, en eitthvað heldur aftur af okkur. Það getur verið sjálfsefi, ótti við að mistakast eða rótgróin innri trú um að við séum „ekki alveg tilbúin“ dregur úr okkur kraft og vilja til verka, jafnvel þegar við vitum í hjarta okkar að við höfum meira fram að færa og þráum að láta ljós okkar skína.
Í Dokkufundinum skoðum við:
Við tengjum þetta svo við framtíðarsýn og aðgerðir:
Erindið er byggt á aðferðum markþjálfunar og markmiðið er að hvetja þátttakendur til að sjálfskoðunar og hvetja þá til að rísa upp og taka pláss og stuðla þannig að eigin vexti.
Lella er PCC vottaður markþjálfi, mannauðsráðgjafi, leiðtogi og rebel. Hún er baráttukona gegn loddaralíðan sem vinnur að því hörðum höndum að auka veg mennskunnar innan skipulagsheilda. Hún vill sjá mennskari leiðtoga sem móta manneskjulegri fyrirtækjamenningu sem styður við berskjöldun, bjartsýni, tilfinningar, fjölbreytileika og breidd hins mannlega.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.