Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Lítil skref skipta máli: Heilsueflandi vinnustaður í verki

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig vinnustaður getur stutt markvisst við heilsu og vellíðan starfsfólk með raunhæfum aðgerðum í daglegu starfi. Sérstaklega verður fjallað um áhrif kyrrsetu, hreyfingar  og vinnuumhverfis á líðan starfsfólks og einfaldar leiðir sem geta nýst bæði litlum og stórum vinnustöðum – því lítil skref skipta máli og geta skapað stórar […]

  • Hvað er hæfni?

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi er því velt upp hvernig við getum verið viss um að ráða hæfasta einstaklinginn og hvernig við getum nýtt hæfileika fólks til fulls. Í erindinu verður fjallað um norska sjónvarpsseríu, þátttökureglur alþjóða-skíðasambandsins fyrir stórmót og hvað almennt þykir eftirsóknarvert, æskilegt, sanngjarnt, árangursríkt og áhugavert. Markmiðið er að vekja upp spurningar um hefðbundin […]

  • Stjórnunartaktur – stjórnunarhjólið – verkfæri í árangursríkri stjórnun

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stjórnunartakt sem samræmdan hrynjanda í stjórnun. Farið verður yfir hvernig stjórnunartaktur getur verið hagnýtt verkfæri við að styrkja stjórnunarhætti með því að auka samræmi, gagnsæi og trygga eftirfylgni áætlana stjórnenda. Samræmdur taktur skapar einnig ramma sem styður við stjórnendur með ólíka styrkleika og reynslu og getur þannig stutt við […]

  • Frá spjallmenni í starfsmann – þróun gervigreindar síðustu mánuði

    Á vefnum

    Gervigreindin hefur tekið stór stökk síðustu mánuði og upplýsingar úreldast hratt. Á þessum Dokkufundi verður farið yfir þá þróun sem skiptir mestu máli núna: agentic AI sem framkvæmir verkefni sjálfstætt, gríðarlegar framfarir í skrifstofuverkefnum eins og Excel og PowerPoint. Við fáum líka að kynnast Magnúsi — gervigreindaraðstoðarmanni fyrirlesarans, en Magnús les tölvupóst, skrifar LinkedIn-færslur og […]

  • BEZTA námskeið: Tilfinningagreint teymi

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík, Iceland

    Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningar: https://dokkan.is/tilfinningagreint-teymi/    

    34.900kr.
  • Glæstar vonir eða markviss forysta?

    Á vefnum

    Hvað aðskilur árangur frá góðum ásetningi? Flest fyrirtæki og stofnanir setja sér metnaðarfulla stefnu. En færri skilgreina hvernig stjórnendateymið ætlar að leiða hana í framkvæmd. Án skýrs leikkerfis stjórnendateymisins verða skilaboð misvísandi, forgangsröðun óskýr og mikil sóun í daglegum rekstri. Samstilling allra í skipulagsheildinni gerist ekki sjálfkrafa – það er meðvituð ákvörðun og þörf á markvissum aðgerðum. […]

  • Samskipti og sigrar í vinnunni (erindið fer fram á ensku)

    Á vefnum

    Nánari lýsing væntanleg - erindið fer fram á ensku. Hver verður með okkur Tim Baker, sem margir þekkja sem höfund bókarinnar "The End of the Performance Review: A new Approach to Appraising Employee Perforformance", og kannski má kalla hann höfund þess sem oft er kallað snerpusamtöl. Fundurinn er haldinn í samstarfi við VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is […]

  • Hjálparhellan: Fræðslumenning sem byggir á seiglu, samábyrgð og gróskuhugarfari

    Á vefnum

    BM Vallá var valið Menntafyrirtæki ársins 2026 á Menntadegi atvinnulífsins fyrir framúrskarandi starf í fræðslu- og menntamálum. Á þessum Dokkufundi verður farið yfir helstu áherslur og ávinning fræðslustarfsins hjá þeim. Sérstök áhersla verður á mælikvarða, velsældarhagkerfi, inngildingu og Hjálparhellu BM Vallár—samfélagssjóð sem styður áhrifarík verkefni sem skapa jákvæðar samfélagsbreytingar, og er jafnframt nýtt innan fyrirtækisins […]

  • Stjórnendahlutverkið 2.0 – Nýr veruleiki stjórnenda og teyma

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufndi verður fjallað um hvernig hlutverk stjórnenda er að breytast í takt við nýtt vinnuumhverfi og nýjar kynslóðir á vinnumarkaði. Skoðað verður hvað ræður árangri þegar færri stjórnendur bera ábyrgð á stærri teymum og hvernig helgun, hæfni, vinnuálag og regluleg endurgjöf móta árangur. Hver verður með okkur Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi […]