MannauðsstjórnunVæntanlegt

Hagnýt mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur

13:00 – 16:00
Hannesarholt, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Af hverju þetta námskeið?

Það er mjög mikilvægt, hafi maður tekið að sér að vera með mannaforráð, að gera það eins og best verður á kosið – fyrir þig, þitt fólk og árangur vinnustaðarins.

Það er líka oft sagt að helsta ástæða þess að fólk hættir á vinnustað sé samband við næsta yfirmann og því mikilvægt að vel takist til.

Góð stjórnun eykur frammistöðu, virkni og starfsánægju, dregur úr starfsmannaveltu – og eykur almennt vellíðan og árangur allra.

Dæmi um umsagnir frá fyrri þátttakendum:

  • “Námskeiðið var mjög gott” – Elías Guðmundsson, forstöðumaður, Krýsuvík
  • “Takk fyrir námskeiðið. Þetta var bara heilt yfir mjög flott hjá þér. Gott balance sem hentar breiðum hópi. Maður vill stundum fá smá inspiration og motivation inn í daginn og þetta gerði það. Góðar samræður og þú uppfull af reynslu og fróðleik.” – Ívar Örn Arnarsson, Össur

Verði ekki komin nægjanlegur fjöldi skráninga þann 20. jan. verður námskeiðinu frestað um óákveðinn tíma – áhugasöm eru því hvött til að skrá sig tímanlega.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • Öðlast betri skilning á mikilvægi starfsgreiningar og tengsl hennar og undirstöðu fyrir marga aðra þætti mannauðsstjórnunar
  • Lært hagnýtar og fjölbreyttar aðferðir við ráðningar
  • Lært um mikilvægi góðar nýliðamóttöku (e. onboarding)
  • Lært um skilvirkar aðferðir frammistöðustjórnunar
  • Áttað sig betur á mikilvægi stöðugrar sí- og endurmenntunar og almennrar starfsþróunar
  • Fengið betri skilning á hvatningu og umbun
  • Lært betur um hvað þarf helst að hafa í huga og passa upp á þegar kemur að starfslokum starfsfólks
  • Fengið innsýn inn í allt hitt, varðandi það að hafa mannaforráð, allt það persónubundna og mannlega sem getur komið upp

Fyrir hverja?

  • Millistjórnendur
  • Teymisstjóra
  • Verkstjóra
  • Vaktstjóra
  • Verkefnastjóra
  • Almenna stjórnendur með mannaforráð

Leiðbeinandi

Herdís Pála Pálsdóttir

Herdís Pála Pálsdóttir hefur starfað við stjórnun og mannauðsmál með ýmsum hætti, hérlendis og erlendis, frá árinu 2000.
Allan þann tíma hefur hún gert mikið af því að fylgjast með nýjustu rannsóknum og skrifum þegar kemur að góðri stjórnun og framtíð vinnu.

Hún er meðhöfundur bókarinnar Völdunarhús tækifæranna, sem kom út árið 2021, og fjallar um framtíðina á vinnumarkaði.

Hún hefur kennt leiðtogafræði, stjórnun og mannauðsfræði við HR, HÍ og Bifröst.

Herdís Pála er með MBA-gráðu, með áherslu á mannauðsstjórnun, frá University of New Haven, í USA og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá HR.