StjórnunVæntanlegt

Að leiða með yfirvegun, skýrleika og áhrifum

09:00 – 12:00
Hannesarholt, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík
  • Ath. Snemmskráningarverð til og með 25. september – þá fæst aukalegur 10% afsláttur af uppgefnum verðum.

Tilfinningagreind sem styrkir þig í stjórnendahlutverkinu.

Bestu stjórnendurnir hafa ekki alltaf svörin. En þeir kunna að halda ró, lesa aðstæður og velja hvernig þeir bregðast við.

Tilfinningagreind er ein af lykilhæfnunum í nútímaforystu. Hún hjálpar stjórnendum að skilja betur eigin áhrif, lesa það sem er að gerast í samskiptum og skapa það öryggi og þann skýrleika sem fólk þarf til að geta staðið sig vel.

Á þessu námskeiði vinnum við með tilfinningagreind sem hagnýtt leiðtogaverkfæri – ekki sem fræðilegt hugtak.

Við skoðum hvernig stjórnendur geta:

  • verið meðvitaðri um eigin áhrif og viðbrögð,
  • haldið ró og yfirvegun þegar mikið gengur á,
  • lesið betur í þarfir, hegðun og líðan starfsfólks,
  • átt skýr og uppbyggileg samtöl,
  • brugðist vel við sterkum tilfinningum – bæði eigin og annarra,
  • og skapað traust, tengingu og ábyrgð í teyminu.

Við kynnumst jafnframt þremur sterkum tilfinningum sem gjarnan láta á sér kræla þegar álag eða breytingar aukast – kvíða, sorg og reiði – og skoðum hvernig stjórnandinn getur mætt þeim af skilningi án þess að þær taki yfir stjórnina.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • aukna sjálfsvitund, skýrari sýn á eigin áhrif og hagnýt verkfæri til að leiða fólk af meiri ró, festu og mannlegum skilningi.
  • Markmiðið er ekki að losna við erfiðar tilfinningar. Markmiðið er að geta leitt vel þrátt fyrir þær.

Fyrir hverja?

  • Stjórnendur
  • Millistjórnendur
  • Teymisstjóra
  • Aðra sem vilja verða öruggari og áhrifameiri í leiðtogahlutverkinu.

Leiðbeinandi

Guðrún Snorradóttir

Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.

Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.

Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi, ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.