fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Sjálfsvitund stjórnenda og áhrif hennar á tilfinningalíf starfsmanna

25. október 2023 @ 09:00 - 09:45

Sjálfsvitund stjórnenda er mun mikilvægari en oft hefur verið talið. Flestir telja sig hafa sjálfsvitund en raunin er sú að það hafa hana ekki margir. Stjórnendur sem hafa áhuga á því að efla sjálfsvitund sína hafa hins vegar mikil áhrif til hins betra á tilfinningalíf starfsmanna sem skilar sér í því að þeir vera ánægðari á vinnustað – og

Í fyrirlestrinum verður farið yfir sjálfsvitund og hvers vegna hún er mikilvæg stjórnendum og vinnustöðum – og auðvitað öllum sem vilja auka skilning sinn á sjálfum sér og öðrum.

Hver verður með okkur?

Sólveig Ragnarsdóttir, lögfræðingur og MSc.

Í meistaranámi sínu lagði Sólveig sérstaka áherslu á mannauðs- og stjórnendafræði sem leiddu til skrifa hennar um sjálfsvitund stjórnenda.
Í dag starfar Sólveig sem deildarstjóri á skrifstofu forstjóra hjá Lyfjastofnun.

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Fundurinn er haldinn í samstarfi Dokkunnar og Verkefnastjórnunarfélags Íslands

Upplýsingar

Dagsetn:
25. október 2023
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.