Markmiðið með fyrirlestrinum er að gefa innsýn inn í þá sálfræðilegu þætti sem í þjálfunarsálfræði eru taldir stórir áhrifavaldar fyrir árangur fyrirtækja. Draumurinn hans Begga er að allir í starfsumhverfinu vakni spenntir fyrir því að takast á við daginn, upplifi öryggi, að þau tilheyri og hafi trú á að þau geti bætt hæfni sína á hverjum degi.
Í fyrirlestrinum er farið yfir nokkur verkfæri sem allir geta nýtt sér til eflingar og skilvirkni.
Beggi er fyrirlesari með MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði og höfundur bókarinnar Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi. Beggi hjálpar fólki að verða það sem það besta sem það getur orðið svo að í sameiningu geti hver og einn lagt sitt af mörkum í að gera vinnustaðinn betri.. Beggi notar verkfæri þjálfunarsálfræðinnar í að hjálpa stjórnendum og teymum að vaxa og þróast.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.