StjórnunVæntanlegt

Að stjórna þegar unnið er í fjarvinnu

13:00 – 16:00
Hannesarholt, Grundarstígur 10, 101 Reykjavík

Traust, skýrleiki og tengsl þegar teymið er ekki allt á sama stað

Af hverju þetta námskeið?

Hugmyndir fólks um vinnu hafa verið að breytast og þróast og fjarvinna er komin til að vera. Á flestum vinnustöðum er vinna orðin að blandaðri vinnu: sumir eru á staðnum, aðrir heima og enn aðrir einhvers staðar allt annars staðar. Stjórnun hefur ekki verið að þróast með sama hætti og hefur ekki alltaf fylgt nægjanlega vel með.

Margt sem gekk upp þegar allir unnu í sama húsnæðinu, og jafnvel á sama tíma, virkar ekki lengur. Það er erfiðara að heyra það sem ekki er sagt. Það er auðveldara að gleyma þeim sem ekki sjást. Og það er freistandi að mæla viðveru frekar en raunverulega frammistöðu og árangur.

Hæft fólk getur leyft sér að gera aðrar kröfur en áður, oft um meiri sveigjanleika og sjálfræði, og velur sér jafnvel vinnustaði út frá því.

Á námskeiðinu skoðum við hvað breytist í raun þegar unnið er í fjarvinnu. Við förum yfir hvernig þú byggir traust án þess að detta í smáatriða-stjórnun (e. micro-managment). Og hvernig þú tryggir að allt starfsfólkið þitt viti til hvers er ætlast af þeim og finni að þau skipta máli, hvar sem þau eru.

Við byggjum á nýjustu rannsóknum, meðal annars frá Stanford og Gallup, og skoðum íslenskar tölur og umræðu. Á Íslandi er blönduð vinna orðin normið, en ramminn utan um hana er oft óskýr.

Þátttakendur fara heim með drög að teymissáttmála, greiningu á verkefnum teymisins og hlekki á ýmsar hagnýtar vefslóðir, m.a. gátlista Vinnueftirlitsins.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • lært um hvað er í raun öðruvísi við að stjórna í fjarvinnu og blandaðri vinnu – og hvað ekki
  • lært um nauðsyn þess að greina hvar og hvenær vinnan er best unnin út frá verkefnum frekar en vana
  • lært leiðir til að skýra væntingar, markmið og mælikvarða og byggja upp traust í báðar áttir – án eftirlits og smástjórnunar
  • lært um mikilvægi þess að móta skýra samskiptahætti með teyminu og tryggt að þau sem sjást sjaldnar verði ekki útundan
  • lært um hvað þarf að hafa í huga varðandi nýliða, tengsl og menningu – og skyldur vinnustaðarins varðandi fjarvinnustefnu og áhættumat
  • áttað sig enn betur á mikilvægi þess að forgangsraða eigin tíma þannig að samtöl, hvatning og endurgjöf fái sitt pláss

Fyrir hverja?

  • Stjórnendur sem stýra fólki í fjarvinnu eða blandaðri vinnu
  • Millistjórnendur og teymisstjóra
  • Verkefnastjóra sem leiða dreifð teymi
  • Nýja stjórnendur
  • Mannauðsfólk sem mótar eða endurskoðar fjarvinnustefnu

Leiðbeinandi

Herdís Pála Pálsdóttir

Herdís Pála Pálsdóttir hefur starfað við stjórnun og mannauðsmál með ýmsum hætti, hérlendis og erlendis, frá árinu 2000.
Allan þann tíma hefur hún gert mikið af því að fylgjast með nýjustu rannsóknum og skrifum þegar kemur að góðri stjórnun og framtíð vinnu.

Hún er meðhöfundur bókarinnar Völdunarhús tækifæranna, sem kom út árið 2021, og fjallar um framtíðina á vinnumarkaði.

Hún hefur kennt leiðtogafræði, stjórnun og mannauðsfræði við HR, HÍ og Bifröst.

Herdís Pála er með MBA-gráðu, með áherslu á mannauðsstjórnun, frá University of New Haven, í USA og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá HR.