MannauðsstjórnunStjórnunVæntanlegt

Uppsagnir og starfslok

13:00 – 16:00
Hannesarholt, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Starfslok eru óumflýjanleg og þau geta borið að með ýmsum hætti.
Algengt er að starfslokum sé skipt í þrjá flokka

  • starfslok þegar starfsfólk segir sjálft upp
  • starfslok þegar vinnuveitandi / stjórnandi á frumkvæðið að starfslokunum
  • starfslok vegna persónulegra aðstæðna eða breytinga, s.s. vegna eftirlauna, náms, flutninga eða annað

Þegar frumkvæðið að starfslokunum kemur frá vinnuveitanda geta þau reynt mjög á og að mörgu að huga, hvort sem það snýr að framkvæmdinni sjálfri eða því sem gerist í framhaldinu.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • lært um hvað þarf helst að hafa í huga varðandi undirbúning uppsagnar, t.d. hvað varðar lög, kjarasamninga, stefnu vinnustaðar, umsýslu o.fl.
  • lært um hvað er mikilvægt að hafa í huga og passa upp á í uppsagnarsamtalinu sjálfu og framkvæmd þess
  • lært um hvað þarf að gera í framhaldinu af uppsögninni, bæði hvað varðar þann sem sagt var upp og þá sem áfram starfa – einnig áhrif á orðspor vinnustaðar ef ekki er vandað til verka í þessum efnum

Fyrir hverja?

  • Alla stjórnendur með mannaforráð, forstjóra, framkvæmdastjóra, deildarstjóra o.sfrv.
  • Mannauðsfólk sem tekur þátt í framkvæmd uppsagna og eftirmálum þeirra.

Leiðbeinandi

Herdís Pála Pálsdóttir

Herdís Pála Pálsdóttir hefur starfað við stjórnun og mannauðsmál með ýmsum hætti, hérlendis og erlendis, frá árinu 2000.
Allan þann tíma hefur hún gert mikið af því að fylgjast með nýjustu rannsóknum og skrifum þegar kemur að góðri stjórnun og framtíð vinnu.

Hún er meðhöfundur bókarinnar Völdunarhús tækifæranna, sem kom út árið 2021, og fjallar um framtíðina á vinnumarkaði.

Hún hefur kennt leiðtogafræði, stjórnun og mannauðsfræði við HR, HÍ og Bifröst.

Herdís Pála er með MBA-gráðu, með áherslu á mannauðsstjórnun, frá University of New Haven, í USA og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá HR.