StjórnunVæntanlegt

Viðverusamtöl í framkvæmd – skýrleiki, samkennd og ákveðni

09:00 – 12:00
Hannesarholt, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Á þessu þriggja tíma námskeiði verður fjallað um veikindi starfsfólks, algengar ástæður fjarvista og hvernig stjórnendur geta átt uppbyggileg viðveru- og veikindasamtöl.

Skoðað verður hvernig hægt er að undirbúa samtal með skýrum tilgangi og markmiði og nota samtalstækni sem styður bæði einstaklinginn og þarfir vinnustaðarins.

Sérstök áhersla verður lögð á hvernig tilfinningastjórnunarkerfin hafa áhrif á hegðun og samskipti í krefjandi aðstæðum, og hvernig samkennd og ákveðni geta farið saman í góðri stjórnendaframkomu.

Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að ræða fjarvistir af virðingu og skýrleika, halda utan um mörk og ábyrgð og takast á við erfið samtöl án þess að þau verði annaðhvort of mjúk eða of hörð.

Ath. Snemmskráningarverð til og með 23. september – en þá fæst aukalegur 10% afsláttur frá auglýstum verðum.

Leiðbeinandi

Ólafur Kári Júlíusson

Ólafur Kári Júlíusson er eigandi Vinnuvís og vinnusálfræðingur með um 16 ára reynslu af mannauðsmálum og ráðgjöf.

Hann vinnur með stjórnendum og starfsfólki að fjölbreyttum og oft krefjandi vinnustaðamálum og hefur mikla reynslu af fræðslu, námskeiðum og erindum um stjórnun, samskipti, mannauðsmál og vinnusálfræði.