Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Eitruð vinnustaðamenning – orsök og afleiðingar

6. maí @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufundi, þar sem fjallað verður um “eitraða vinnustaðamenningu” (e. Toxic Workplace-culture) verður kafað ofan í persónuleikaþætti, menningu og skipulagshönnun.

Komið verður inn á afleiðingar eitraðrar vinnustaðamenningar á heilsu og líf fólks. Einnig streitu vegna vinnuálags og hvernig má draga úr henni.

Hver verður með okkur

Hildur Jakobína Gísladóttir vinnusálfræðingur. Hún er með MSc. í klínískri sálfræði og einnig MBA menntun.

Hildur er stjórnendamarkþjálfi, eigandi Officium ehf. og starfar sem vinnustaðaráðgjafi hjá Köru Konnect, ásamt því að sinna ráðgjöf á Velferðartorgi Köru Connect.

Hún býr og starfar bæði á á Íslandi og í Hollandi og slær hjarta hennar hraðast í vinnusálfræðinni, því þar liggur hennar ástríða.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni
  • Sjálfsforysta

 

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.

Mikilvægt
: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.

ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

 

Details

Venue

  • Á vefnum