Loading Events

« All Events

Stjórnendahlutverkið 2.0 – Nýr veruleiki stjórnenda og teyma

15. apríl @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufndi verður fjallað um hvernig hlutverk stjórnenda er að breytast í takt við nýtt vinnuumhverfi og nýjar kynslóðir á vinnumarkaði.

Skoðað verður hvað ræður árangri þegar færri stjórnendur bera ábyrgð á stærri teymum og hvernig helgun, hæfni, vinnuálag og regluleg endurgjöf móta árangur.

Hver verður með okkur

Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi Gallup.

Hún er með BS í sálfræði og MS í mannauðsstjórnun og hefur unnið í mannauðsmálum frá árinu 2014, bæði á almenna vinnumarkaðnum og hjá hinu opinbera.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni
  • Persónuleg hæfni

 

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

Venue

  • Á vefnum