Tilfinningagreind stjórnandans
– lykill að áhrifaríkri og mannlegri forystu. 

Af hverju þetta námskeið?

Forysta snýst ekki eingöngu um stefnu, ákvarðanir og árangur – hún snýst ekki síður um sjálfsvitund, samskipti og tilfinningaleg áhrif. Tilfinningagreind er ein mikilvægasta hæfni stjórnenda í nútíma starfsumhverfi og hefur bein áhrif á traust, samskipti og frammistöðu teyma.

Stjórnendur standa í dag frammi fyrir flóknum áskorunum: ólíkum kynslóðum með mismunandi væntingar, auknu andlegu álagi í teymum og hraðari breytingum sem að hafa
áhrif á hegðun og líðan starfsmanna. Í slíkum aðstæðum skiptir máli að geta lesið í aðstæður, brugðist við af yfirvegun og skapað öryggi og skýrleika.

Á þessu námskeiði er unnið með tilfinningagreind stjórnandans sem persónulega og faglega grunnfærni. Þátttakendur efla sjálfsvitund, læra að vinna með eigin tilfinningar og skilja betur hvernig nærvera þeirra, viðbrögð og ákvarðanir hafa áhrif á aðra.

Námskeiðið leggur grunninn að meðvitaðri forystu og skapar sterkan undirstöðuþátt fyrir
áframhaldandi þróun í teymisvinnu og samstarfi.

 

Markmið námskeiðsins:

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • Aukna sjálfsvitund og skilning á eigin áhrifum í leiðtogahlutverki
  • Betri hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og tilfinningalegt álag
  • Færni til að lesa í hegðun, líðan og þarfir starfsmanna
  • Verkfæri til að brúa kynslóðabil og vinna með ólíkar væntingar
  • Aukið öryggi í að leiða fólk af mannúð og skýrleika

Hvenær?

25. febrúar 2026, kl. 9-12

Hvar?

Hannesarholt
Grundarstíg 10
101 Reykjavík

 

Fyrir hverja?

  • Stjórnendur
  • Millistjórnendur
  • Teymisstjóra
  • Mannauðsstjóra
  • Lykilfólk með mannaforráð

Leiðbeinandi

Guðrún Snorradóttir

Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.

Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.

Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi, ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.

Verð

Almennt verð er kr. 34.900 – EN fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 29.900

Ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 26.910 fyrir hvert sæti til starfsfólks aðildarfyrirtækja
og kr. 31.410 til annarra.

Samspil námskeiðanna um tilfinningagreind, þ.e. Tilfinningagreind stjórnandans og Tilfinningagreint teymi:

  • Tilfinningagreind stjórnandans vinnur með innri færni og áhrif einstaklingsins í hlutverki.
  • Tilfinningagreint teymi vinnur með sameiginlega ábyrgð, samskipti og menningu hópsins.

Saman mynda þau heildstæða þróunarleið, þar sem einstaklingar læra fyrst að leiða sjálfa sig – og síðan að leiða og taka þátt í heilbrigðu, traustu og árangursríku samstarfi.