Loading Events

« All Events

Gervigreind með viðvörunarljós – hver er við stýrið þegar tæknin tekur völdin?

5. mars @ 09:00 - 09:45

Gervigreind með viðvörunarljós – hver er við stýrið þegar tæknin tekur völdin?
– Um hugsun, ósýnileg box og leiðtogahæfni í heimi þar sem allt þarf að gerast strax

Þú opnar tölvuna á morgnana. Pósthólfið er fullt. Slack pingar. Teams blinkar.
Áður en þú nærð að klára kaffið hefur gervigreindin þegar boðið þér þrjár lausnir, fimm hugmyndir – og eina „best practice“.

Þú svarar, klárar, sendir – og hugsar svo: „Bíddu… var þetta í alvöru það sem ég vildi segja?“

Í þessum fyrirlestri er gervigreindin notuð sem spegill – til að skoða hvernig við hugsum, hvers vegna við flýtum okkur, og hvaða ósýnilegu box við höfum ómeðvitað sett okkur í.
Box sem hafa áhrif á ákvarðanir, samskipti – og hvernig við leiðum.

Við förum í gegnum:

  • Hvernig við getum virkjað meðvitaða dómgreind í heimi sjálfvirkni

  • Af hverju hraði og skilvirkni eru ekki alltaf bestu vinir viskunnar

  • Og hvernig við getum unnið með gervigreindina – án þess að láta hana taka völdin

Fyrirlesturinn er fyrir fólk sem vill nýta tækni með húmor, mannúð og skýrri innri stefnu.
Ekki til að gera meira – heldur til að gera það sem skiptir máli.

Þátttakendur ættu að geta tekið með sér:
☑️ Betri spurningar
☑️ Meiri meðvitund
☑️ Og kannski nýja ákvörðun um hvenær það borgar sig að hægja aðeins á.

Í heimi þar sem tæknin svarar áður en við spyrjum, verður það byltingarkennt að staldra við – og spyrja af alvöru.

Hver verður með okkur?

Rúna Magnúsdóttir – leiðtogamarkþjálfi, mentor og konan á bak við BeBBY-AI, spegilkerfið sem hjálpar leiðtogum að muna hverjir þeir eru í heimi sjálfvirkni og hraða.

Rúna nýtir spegilinn sem gervigreindin býður – til að minna þig á að sannur leiðtogi leitar svara ekki úti, heldur inn á við.

 

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist hæfniþáttunum Tæknileg hæfni og Hæfni til sjálfsstjórnar.

 

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

  • Date: 5. mars
  • Time:
    09:00 - 09:45
  • Event Category:

Venue

  • Á vefnum