Mælingar á árangri mannauðsstjórnunar
Af hverju þetta námskeið?
Það er mikilvægt að geta sýnt fram á árangur faglegrar mannauðsstjórnunar í formi talna og í samhengi við rekstur vinnustaðarins.
Það er oft sagt að það sé erfitt að stjórna því sem ekki er hægt að mæla. En það er líka bara mjög mikilvægt að vera með tölurnar sínar á tæru, hvort sem það er í áætlanagerðinni, til að rökstyðja fjárþörf, eða til að sýna fram á að eiga erindið við borðið.
Markmið námskeiðsins:
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:
- Lært aðferðir til að reikna út ýmsa algenga og einfalda mannauðstölfræði
- Lært nokkrar flóknari formúlur til að reikna út arðsemi mannauðsmála o.fl.
- Lært hvernig má tengja betur saman mannauðstölfræðina og rekstrarniðurstöður vinnustaðarins
- Lært hvernig má betur bera saman árangur mannauðsstjórnunar á milli vinnustaða og við samkeppnisaðila
- Hvernig má tengja saman ólíkar tölur, úr mannauðsmálum, sölu, þjónustu, stjórnun o.fl. og nota það til að sjá skýrar orsakasamhengi á vinnustaðnum og sjá fyrir eigin trend
- Búið sér til grunn að mannauðsmælaborði sem líklegt er að nái augum og eyrum fjármála- og forstjóra
Hér má lesa skilmála námskeiða Dokkunnar.
Hvenær?
28. maí 2026, kl. 9-12
Hvar?
Hannesarholt
Grundarstíg 10
101 Reykjavík
Fyrir hverja?
- Mannauðsstjóra
- Fjármálastjóra
- Forstjóra og framkvæmdastjóra
- Mannauðssérfræðinga
Leiðbeinandi
Herdís Pála Pálsdóttir
Herdís Pála Pálsdóttir hefur starfað við stjórnun og mannauðsmál með ýmsum hætti, hérlendis og erlendis, frá árinu 2000.
Allan þann tíma hefur hún gert mikið af því að fylgjast með nýjustu rannsóknum og skrifum þegar kemur að góðri stjórnun og framtíð vinnu.
Hún er meðhöfundur bókarinnar Völdunarhús tækifæranna, sem kom út árið 2021, og fjallar um framtíðina á vinnumarkaði.
Hún hefur kennt leiðtogafræði, stjórnun og mannauðsfræði við HR, HÍ og Bifröst.
Herdís Pála er með MBA-gráðu, með áherslu á mannauðsstjórnun, frá University of New Haven, í USA og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá HR.
Verð
Almennt verð er kr. 34.900 – EN fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 29.900
Ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 26.910 fyrir hvert sæti til starfsfólks aðildarfyrirtækja
og kr. 31.410 til annarra.
Hér má lesa skilmála námskeiða Dokkunnar.