Leiðbeinandi samtöl – tökum strax á málunum.
Um námskeiðið
Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðu atriði leiðbeinandi samtala og hvernig dæmigert samtal fer fram frá A til Ö. Fjallað verður um hlutverk og viðhorf stórnandans og hvernig best sé að taka á óæskilegri hegðun á formlegan og skipulagðan máta.
– Helstu þættir námskeiðsins eru:
- Hvað: Hugmyndafræði leiðbeinandi samtala og hlutverk stjórnandans.
- Ávinningur: Hagnýtar leiðir til að takast á við verkefnið, þjálfun í samtalinu.
- Verkfæri: Hvernig lítur leiðbeinandi samtal út og hvernig framkvæmi ég það.
- Innsýn: Skilningur á því hvenær sé gott að nýta verkfærið og hvað þarf til að brjóta ísinnn.
- Samskipti: Hve hugarfar stjórnandans er mikið lykilatriði og virk hlustun.
- Forvarnir: Hvernig hægt er að koma í veg slík samtöl með skýrleika og væntingastjórnun í upphafi ráðningarsambands.
Markmið námskeiðsins:
Auk þess að öðlast dýpri skilning á leiðbeinandi samtölum sem aðferð, ættu þátttakendur að geta nýtt sér nálgunina til þess að grípa inn í krefjandi starfsmannamál á fyrri stigum. Að námskeiði loknu ættu þátttakandur að gera svarað eftirfarandi spurningum:
Hvað er leiðbeinandi samtal og hvernig beitum við því verkfæri við stjórnun?
- Hvaða þýðingu hefur að að hefja ráðningarsambandið á réttum nótum?
- Hvað er sálfræðilegi samningurinn?
- Hvaða gögn þarf að hafa til stuðnings?
- Hver er grunnfærni markþjálfans og hvernig nýtist sú færni í krefjandi samtölum?
- Að vinna með eigið hugarfar fyrir samtalið.
- Samtalið frá A til Ö ásamt undirbúningi.
- Eftirfylgni samtalsins
- Hagnýtar æfingar
Hvenær?
27. janúar 2026, kl. 9-12
Af hverju þetta námskeið?
Reynslan hefur sýnt að eitt af því sem að stjórnendum finnst hve erfiðast að takast á við í sínu starfi er að leiðrétta hegðun sinna starfsmanna. Óásættanlegt hegðun getur haft mismunandi birtingarmyndir, allt frá beittum húmor yfir í ókurteisi eða í verstu tilfellum einelti. Allir stjórnendur þurfa á einhverjum tímapunkti að takast á við slíkar áskoranir í starfi sínu og þá gildir að hafa réttu verkfærin. Leiðbeinandi samtöl eru ein leið til að takast á við slík verkefni og geta veitt stjórnendum það öryggi sem til þarf að brjóta ísinn og hefjast handa.
Fyrir hverja er námskeiðið?
- Stjórnendur og millistjórnendur fyrirtækja
- Mannauðsstjóra sem vilja bæta við sig verkfærum í krefjandi samtölum
- Leiðtoga og teymisstjóra sem vilja hafa færnina til að taka á slíkum samtölum
- Lykilfólk í meðalstórum og minni fyrirtækjum með mannaforráð
- Alla þá sem hafa áhuga á að fá aukið færni sína í að taka á erfiðum málum innan síns hóps
Leiðbeinandi
Guðrún Snorradóttir
Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.
Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi , ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.
Verð
Almennt verð er kr. 34.900
EN fyrir starfsmenn aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 29.900
OG – ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 26.910 fyrir hvert sæti til starfsmanna aðildarfyrirtækja og kr. 31.410 til annarra.
Hvar?
Í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík