Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Virðisdrifnar innanhúss herferðir og skilaboð til stjórnenda og starfsfólks

25. febrúar @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra frá reynslubolta þegar kemur að því að hanna og stýra innanhúss herferðum og hvað skiptir máli þegar kemur að skilaboðum til stjórnenda og starfsfólks.

Hulda vinnur nú að því, ásamt sínu fólki, að innleiða nýja stefnu hjá Eimskip, Eimskip 3.0, og mun hún deila sögum og reynslu tengt þeirri vegferð.

Hver verður með okkur?

Hulda Bjarnadóttir, Global Talent Development & Culture Manager hjá Eimskip.

Hún er jafnframt Forseti Golfsambands Íslands.

Áður starfaði hún hjá Marel, en einnig í fjölmiðlum.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni

 

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.

Mikilvægt
: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.

ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

Venue

  • Á vefnum