- This event has passed.
Stjórnunartaktur – stjórnunarhjólið – verkfæri í árangursríkri stjórnun

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stjórnunartakt sem samræmdan hrynjanda í stjórnun.
Farið verður yfir hvernig stjórnunartaktur getur verið hagnýtt verkfæri við að styrkja stjórnunarhætti með því að auka samræmi, gagnsæi og trygga eftirfylgni áætlana stjórnenda.
Samræmdur taktur skapar einnig ramma sem styður við stjórnendur með ólíka styrkleika og reynslu og getur þannig stutt við jafnræði í stjórnun gagnvart starfsfólki.
Markmið erindisins er:
- Að skapa skilning á hugtakinu stjórnunartaktur
- Að setja fram hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að tryggja árangursríkan stjórnunartakt
- Að setja fram aðferð eða verkfæri fyrir hlustendur til að taka áfram og tileinka sér innan sinna skipulagsheilda
Hver verður með okkur?
Unnur Helga Kristjánsdóttir, einn eiganda og ráðgjafi fyrirtækisins Strategía.
Unnur hefur yfirgripsmikla starfsreynslu í stjórnunar- og leiðtogastörfum með sérhæfingu í gæðastjórnun, verkefnastjórnun og stefnuframkvæmd.
Hún hefur unnið í fjölbreyttum atvinnugreinum og unnið að eflingu stjórnunarhátta innan skipulagsheilda og leitt fjölbreytt umbótaverkefni sem stuðla að bættri árangursstjórnun.

Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:
- Stjórnunarhæfni
- Vitræn hæfni
- Persónuleg hæfni
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.