Á Dokkufundinum verður fjallað um það hvernig unnið er að innleiðingu stefnu í samstæðu OR. Samstæðan starfar innan ramma eigendastefnu sem mótar stjórnarhætti hennar og ferli við innleiðingu stefnu. Með sérstöku verklagi við rýni, mótun og eftirfylgni stefnu er stuðlað að því að stjórnir samstæðunnar hafi nauðsynlega yfirsýn til að sinna stefnutengdu hlutverki sínu og stjórnendur og starfsfólk hafi það veganesti sem þarf til að stýra með sýn og markmiðum.
Guðrún Erla Jónsdóttir, Stefnustjóri OR og doktorsnemi á sviði stjórnhátta og stefnu.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.