- This event has passed.
Hvernig selur maður þurrasta brauðið í bakaríinu?
6. mars @ 09:00 - 09:45
Stjórnun skjala og upplýsinga er nauðsynlegur hluti hverrar skipulagsheildar og þá sérstaklega í opinberri starfsemi þar sem skilaskylda er á gögnum til skjalasafns. Hvernig varð „Hlaðan“ þekkt vörumerki innan stjórnsýslu Reykjavíkur og hvernig er hægt að ná mikilvægum skilaboðum í gegn með frjóum og frískum hætti?
Á Dokkufundinum mun Bjarni Jón segja okkur frá því hvernig skrifstofa upplýsinga- og skjalastýringar á þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar hefur staðið að fræðslu- og kynningarmálum við innleiðingu Hlöðunnar, upplýsingastjórnunarkerfis Reykjavíkurborgar; sjá dæmi um afurðirnar sem bjóðast starfsfólki; og dæmi um verkfæri sem gott er að hafa tiltæk við gerð kynningarefnis.
Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Skjalastjórnunarfélag Íslands
Hver verður með okkur?
Bjarni Jón Sveinbjörnsson, hlöðusérfræðingur hjá Reykjavíkurborg
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.