fbpx
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Þegar karlar stranda – og leiðin í land

18. febrúar 2021 @ 09:00 - 09:45

Kulnun, örmögnun, streita og alvarleg áföll hafa á undanförnum árum gert það að verkum að æ fleiri lenda í ógöngum og hrekjast jafnvel af vinnumarkaði. Og þetta á bæði við um karla og konur.

Karlar tala síður en konur um það hvernig þeim líður. Þeir velja margir hverjir að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Sirrý hefur tekið viðtöl við karlmenn á ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og með mismunandi stöðu í samfélaginu og veita þau einstaka innsýn í líf þeirra og líðan. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa strandað og upplifað verulega vanlíðan. Þeir gátu ekki unnið og voru við það að sökkva. En þeir gripu til aðgerða, fóru að vinna í sínum málum og komust í land.

Á Dokkufundinum fáum innsýn í ferðalag þessara karla – hver var staðan og hvað gerðu þeir til að komast í land.

Í bókinni hennar Sirrýar, Þegar karlar stranda og leiðin í land, sem kom út 2020, er einnig fjallað um það hvernig karlmenn fyrri tíma brugðust við örmögnun og áföllum og rætt við sálfræðing og félagsráðgjafa um veruleika þeirra sem stranda í lífinu.

Hver?

Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst

 

Því miður þá er upptakan ekki aðgegnileg lengur

Details

Date:
18. febrúar 2021
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.