Loading Events

« All Events

Samskiptastefna sem þriðja stoðin í stefnumótun og áætlanagerð

18. febrúar @ 09:00 - 09:45

Fjárhagsáætlanir eru í raun ákveðinn endahnútur í stefnumótunarferli fyrirtækja þar sem þær endurspegla hvernig þau hyggjast hrinda stefnu sinni í framkvæmd. Það sem of oft gleymist í þessu ferli er samskiptaþátturinn: að koma því skýrt til skila, sérstaklega innanhúss, hvert félagið stefnir, hvernig það ætlar að komast þangað og hvaða hlutverki starfsmenn ólíkra sviða og deilda gegna í innleiðingunni.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um mikilvægi þess að samskiptaáætlun sé tengingin á milli stefnumótunar, áætlunargerðar og framkvæmdar. Hún brúar bilið milli þess sem ákveðið er og þess sem raunverulega gerist: skýrir forgangsröðun, styður innleiðingu og gerir fólki kleift að skilja sitt hlutverk í heildarmyndinni.

Hver verður með okkur?

Már Másson, ráðgjafi og einn eiganda ráðgjafarfyrirtækisins Athygli. Hann hefur yfirgripsmikla reynslu úr rekstri, ráðgjöf og samskiptamálum.

Már var áður framkvæmdastjóri viðskipta- og rekstrar hjá Bláa lóninu og forstöðumaður samskiptamála og stafrænna dreifileiða hjá Íslandsbanka og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að rekstri og innleiðingu stefnu.
Hann er með B.Sc.-gráðu í Alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) og M.Sc.-gráðu í samskiptum og stjórnun frá háskólanum í Lugano í Sviss.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum

Hvar verðum við

Á vefnum – í Teams

Details

  • Date: 18. febrúar
  • Time:
    09:00 - 09:45
  • Event Category:

Venue

  • Á vefnum