fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Helstu staðlar og áskoranir á sviði áhættustýringar, hvaða aðferðir virka vel og hvað er samhæfð áhættustjórnun (en. Enterprise Risk Management)

14. febrúar @ 09:00 - 09:45

Töluverð áskorun fylgir því að koma á virku stjórnskipulagi og ná mælanlegum árangri við innleiðingu á samræmdri áhættstjórnun. Til eru margar mismunandi aðferðir við framkvæmd áhættumats og kerfi. Þá eru einnig mjög margir sérhæfðir staðlar og aðferðir til að meta hættur. Það sem fjallað verður um á Dokkufundinum er:

  • Helstu staðlar, hlutverk og ábyrgð
  • Mat á eðlislægri áhættu (e. inherent risk)
  • Mat á eftirstæðri áhættu (e. residual risk)
  • Hvernig stýringar (e. controls) hafa áhrif á áhættu
  • Slaufugreiningar (Bow-Tie)
  • Mælanleg markmið og frammistöðumat
  • Upplýsingagjöf og skýrslur

Hver verður með okkur?

Ólafur Róbert Rafnsson, sérfræðingur á svíði áhættustjórnunar og upplýsingaöryggis

Ólafur hefur sl. 20 ár unnið með fyrirtækjum og stofnunum við útfærslu áhættustýringar, framkvæmd áhættumata og innleitt verklag sem tekur mið af helstu stöðlum og bestu venjum. „

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Upplýsingar

Dagsetn:
14. febrúar
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.