Ath. Dokkufundurinn verður EKKI tekinn upp
Það er mikið framboð og eftirspurn eftir snillingum ef marka má athugasemdir á samfélagsmiðlum og atvinnuauglýsingar meðan staðreyndin er sú að við erum flest meðalmenni. Hamrað er á að við eigum að fylgja köllun okkar og vera sífellt besta útgáfan af okkur sjálfum. Hvaða áhrif hafa þessar óraunhæfu kröfur á mannauðsstjóra og fólkið sem það ræður í vinnu – eða ræður ekki? Óttinn við að mistakast lamar okkur. Hann kemur í veg fyrir að við þorum að stíga fram og gera það sem okkur langar til að gera. Og það sem við þurfum að gera.
Í þessu erindi verður fjallað um fullkomnunaráráttu, hugleysi og hvernig þjálfa má hugrekki. Fyrirlesari leitar í smiðju Dr Brené Brown, Design Thinking og jákvæðrar sálfræði.
Ragnhildur Vigfúsdóttir, markþjálfi með diploma í starfsmannastjórnun og jákvæðri sálfræði
Ragnhildur er einnig vottaður Dare to Lead og Five Behaviors of Cohesive Teams þjálfari – en það fyrra er úr smiðju Dr Brené Brown og það síðara Lencioni. Hún er einnig vottaður Designing Your Life Coach og nýtur þess að vinna með einstaklingum og teymum.
Á vefnum – í Teams