- This event has passed.
Hver eru raunveruleg áhrif Covid faraldursins á andlega líðan okkar – rannsókn

Aðstæður síðustu mánuði hafa skapað nýjar áskoranir fyrir starfsfólk. Dale Carnegie hefur safnað áhugaverðri tölfræði sem varpar ljósi á stöðu og líðan fólks á vinnumarkaði á Covid tímanum.
Í því ljósi ætlum við að velta fyrir okkur:
- Hvað þarf að gera til að styrkja fyrirtækjamenninguna?
- Hvaða áhrifaþættir skapa seiglu og tryggja að við komum sterk til baka?
- Hverju þurfa stjórnendur að vera vakandi fyrir næstu vikur og mánuði?
Á Dokkufundinu mer komið inn á fjórar leiðir í stöðunni, fyrir stjórnendur til að auka árangur starfsmanna.
Hver?
Unnur Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Dale Carnege á Íslandi
Misstir þú af fundinum?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli.