Kaffistofan hefur rangt fyrir sér um lífeyrismál

Á þessum Dokkufundi verður rætt um algengar mýtur um lífeyrismál og hvernig forðast megi kostnaðarsöm mistök.
Hver verður með okkur?
Fyrirlesari er Björn Berg Gunnarsson.
Hann starfar sjálfstætt við fjármálafræðslu. Sjá meira um Björn og hans þjónustu inn á bjornberg.is

Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist hæfniþáttunum Vitræn hæfni og Hæfni til sjálfsstjórnar.
Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams