Viltu læra betur á LinkedIn til að styrkja tengslanetið og vaxa í starfi? LinkedIn er samfélagsmiðill þeirra sem vilja eiga í uppbyggilegum samskiptum til að hlúa að starfsferlinum eða tengjast nýjum viðskiptaaðilum. Miðillinn er sömuleiðis öflugt verkfæri til persónulegrar mörkunar (e. personal branding), sem verður sífellt mikilvægara í harðri samkeppni um eftirsótt störf og mikilvægis starfsræns fótspors fyrir atvinnuleitendur. En LinkedIn er um margt ólíkt öðrum samfélagsmiðlum eins og Facebook eða Twitter og gagnlegt að skilja helstu atriði sem skilja þar á milli.
Hans Júlíus Þórðarson en hann hefur síðustu ár sérhæft sig í efnismarkaðssetningu (e. content marketing) og starfar sem markaðsstjóri hjá Vettvangi, vefstofu.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli.