
Á Dokkufundunum skoðum við hvernig við greinum vinnustaðamál á vinnustaðnum án þess að giska… of mikið. Við rýnum í orsök vs. afleiðingu, horfum á kerfið frekar en einstaklinginn, skoðum nytsamleg verkfæri og spyrjum: „Hvað gerum við svo?“
Við fáum nokkrar dæmisögur sem hrista vonandi upp í hugsun okkar og og athugum hvort við getum ekki líka gert þetta skemmtilegt.
Hver verður með okkur?
Ólafur Kári Júlíusson, sérfræðingur í vinnusálfræði
Ólafur er vinnusálfræðingur með yfir 15 ára reynslu úr HR-heiminum, þar sem hann hefur hjálpað fyrirtækjum að skilja fólk betur – og fólki að skilja vinnuna sína. Hann vinnur daglega að því að greina vandamál á vinnustöðum og hjálpa stjórnendum að taka upplýstar og mannlegar ákvarðanir. Hann trúir á faglegt innsæi, góða gagnrýna hugsun og smá húmor til að leysa jafnvel flóknustu mál. Þegar vinnustaðir fara að hiksta – þá kemur hann með hlustunarpípuna sína (sem er Excel, viðtöl og smá skynsemi) og hjálpar þeim að ná jafnvægi á ný.
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn þegar hann hefst fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.