
- This event has passed.
Heilsuefling á vinnustöðum – ný viðmið og reynslan af innleiðingu þeirra
14. janúar @ 15:00 - 16:00

Við fáum innsýn í ný viðmið fyrir heilsueflandi vinnustaði og reynslu fyrirtækja af því að vinna með hin nýju viðmið.
Þau sem verða með okkur:
- Gunnhildur Gísladóttir frá Vinnueftirlitinu
- Ingibjörg Loftsdóttir frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði
- Líney Árnadóttir frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði
- Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir frá embætti landlæknis
Síðan mun Sveina Berglind Jónsdóttir frá Icelandair segja okkur frá því hvernig ferlið hefur gengið hjá þeim, en þau hafa tekið þátt í tilraunaverkefni á notkun heilsueflandi viðmiðanna.
Misstir þú af fundinum?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.