- This event has passed.
Hagnýt siðfræði: Hvað er siðferðilega rétt? Hvaða ákvörðun á ég að taka?
11. janúar @ 09:00 - 09:45
Í hagnýtri siðfræði er farið yfir helstu kenningar í siðfræði og hvernig má nýta hagnýta siðfræði í ákvarðanatöku og uppbyggingu siðareglna og samskiptasáttmála.
Meðal þeirra spurninga sem verður velt upp á Dokkufundinum eru: Hvað er siðferðilega rétt? Hvaða ákvörðun á ég að taka? Hvað er siðferðilega rétt að gera í þessum aðstæðum? Hvað þýðir það að beita gagnrýnni hugsun? Hvað er rétt að hafa í huga þegar við setjum upp siðareglur?
Hver verður okkur?
Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lögfræðingur með meistarapróf í viðskiptasiðfræði
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.