fbpx
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Hæglæti: Falið afl til breytinga á lífsstíl og aukinna lífsgæða

9. janúar @ 09:00 - 09:45

Í erindi sínu, mun Þóra Jónsdóttir, formaður Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi, kynna fyrir þátttakendum hugmyndafræði hreyfingarinnar um ávinning hæglætis fyrir samfélagið.

Hæglætishreyfingin er hreyfing fólks sem hefur tileinkað sér eða hefur áhuga á að tileinka sér hæglæti (e. slow living, einnig simple-living). Hæglæti er svar við hraða og streitu samfélagsins. Hæglæti er val um að lifa meðvitað og að hafa stjórn á og val um það hvernig maður ver tíma sínum. Hæglæti getur auðveldað okkur að verða meðvituð um að við höfum val um ákvarðanir og viðbrögð við aðstæðum og þar með að upplifa okkur ábyrg fyrir eigin líðan, heilsu og samskiptum okkar við aðra.

Hver verður með okkur?

Þóra Jónsdóttir, formaður Hæglætishreyfingarinnar

Hvar verðum við?

Á vefnum – í Teams

Details

Date:
9. janúar
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.