Gögn – til valdeflingar starfsfólks

Á þessum Dokkufundi verður tekið á kjarna þess hvers vegna það skiptir máli að veita starfsfólki aðgang að gögnum og getu til að deila þeim á skilvirkan hátt — ekki sem tæknimarkmið, heldur sem vegferð í að byggja upp gagnadrifna menningu og skilvirkari ákvarðanatöku.
Kynningin snýr að því hvernig fyrirtæki geta losað sig úr sjálfheldu og aukið virði í því sem þau eiga nóg af – gögnum ásamt því að skapa umhverfi þar sem gagnaöflun, deiling og notkun eru eðlilegur hluti af vinnuferlum.
Jafnframt leiðir kynningin Dokkufélaga í gegnum lykilatriði sem skipta máli fyrir stjórnendur og rekstraraðila sem vilja nýta gögn til að styðja við ákvarðanir og árangur:
- Af hverju aðgangur og deiling gagna skiptir máli: Hvernig það eykur skilning, dregur úr óvissu og eykur hraða ákvarðanatöku þegar rétt gögn eru aðgengileg þeim sem þurfa þau.
- Algengar hindranir í fyrirtækjum: Hvernig of strangt aðgengi, handvirkar undantekningar og óljósar reglur um gagnastjórnun geta dúkkað upp og skapað skuggakerfi og óformleg vinnuferli sem draga úr skilvirkni.
- Hvernig komast má út úr þessum gildrum: Aðferðir til að hanna aðgengi sem styður við ábyrgð frekar en stjórn, með áherslu á hlutverkaskil, tímabundinn aðgang og sýnileika í gagnanotkun.
Þekkingarsvið sem koma við sögu:
- Stjórnun og gagnadrifin umbreytingar – af hverju gögn eru ekki bara „tæki“ heldur kjarnahluti í að styðja við ábyrgð og ákvarðanatöku.
- Gagnamenning og starfshættir – hvernig skapa má heilbrigða gagnamenningu sem styður við bætt aðgengi, traust og skýra ábyrgð.
- Skipulag og gagnastjórnun – hugmyndir um hvernig fyrirtæki geta byggt upp skalanlega og örugga gagnadeilingu sem styrkir starfsmenn án þess að draga úr gagnaöryggi.
- Rekstrarsýn og lausnamiðuð nálgun – hvernig aukið gagnaaðgengi getur leitt til betri niðurstöðu í daglegu starfi.
Hver verður með okkur?
Davíð Stefán Guðmundsson.
Hann er með yfir 25 ára reynslu úr viðskipta- og vöruþróun og hefur unnið hjá stórum fyrirtækjum og nýsköpunarfyrirtækjum.
Núna sér Davíð um viðskiptaþróun hjá uiData ehf ásamt því að vera einn af eigendum þess félags.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams