Gervigreind neyðir okkur til að endurhugsa verðmætasköpun og rekstur

Gervigreind er ekki næsta skref í stafrænni þróun skipulagsheilda heldur felur í sér mun róttækari umbreytingu á framtíðar verðmætasköpun og rekstri.
Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig alþjóðlegir stjórnendur eru að endurhugsa stefnu sinna fyrirtækja, aukna fjárfestingu þeirra í innleiðingu gervigreindar, helstu áskoranir og hvaða lærdóm íslenskir stjórnendur geta dregið.
Hver verður með okkur?
Helgi Rafn Helgason, ráðgjafi hjá KPMG á Íslandi.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist
- hæfniflokki WEF sem kallast Stjórnunarfærni (e. Management skills). Undir þann hæfniflokk falla hæfniþættirnir
- Mannauðsstjórnun
- Auðlindastjórnun og rekstur
- Gæðastjórnun
- hæfniflokki McKinsey sem kallast Stafræn hæfni (e. Digital). Undir þann hæfniflokk falla hæfniþættirnir
- Stafræn færni og notkun
- Notkun og þróun hugbúnaðar
- Skilningur á stafrænum kerfum
Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams