Frá hugmynd að lausn… að virði!
14. janúar 2026 @ 09:00 - 09:45
„Hvað er virði? Er það kóði sem virkar, notandi sem brosir, eða samtal sem skilar árangri?
Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig verkefnastýring og vörustýring móta lausnir sem lifa þrátt fyrir ólíka sýn, menningu og kerfi.
Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði.
Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði.
Þetta er hugvekja um samvinnu, breytingar og hvernig við sköpum meira en bara vöru – við sköpum áhrif.
Hver verður með okkur?
Íris Ósk Ólafsdóttir, verkefnastjóri í viðskiptalausnum hjá Advania og
Guðríður Hjördís Baldursdóttir, vörustjóri í sérlausnum hjá Advania.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist
- hæfniflokki WEF sem kallast Vinna með öðrum (e. Working with others). Undir þann hæfniflokk falla hæfniþættirnir
- Leiðtogun og félagsleg áhrif
- Samhygð og virk hlustun
- Kennsla og leiðsögn
- hæfniflokki McKinsey sem kallast Vitræn hæfni (e. Cognitive). Undir þann hæfniflokk falla hæfniþættirnir
- Gagnrýnin hugsun
- Skipulag og vinnulag
- Samskipti
- Andlegur sveigjanleiki
Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams