- This event has passed.
Spjall um þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og sjúkdóminn offitu
18. október 2023 @ 09:00 - 09:45
Á Dokkufundinum fárum við að vita eitt og annað um efnaskiptaheilsu.
Það er fullkomlega eðlilegt að líkaminn okkar vilji safna forða. En ef of mikið er af orkuforða i fituvefnum þá vakna spurningarnar um hvort verið sé að ógna heilsunni okkar. Við fáum sífellt upplýsingar um ný snilldarráð til að léttast. Þau virka frábærlega í smá stund svo fer allt í sama farið aftur, jafnvel aðeins verra. Með því að skilja þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og fituvefinn sjálfan betur verður vonandi auðveldara að átta sig á því hvað er líklegt til að virka og hvað ekki. Þá verður lika auðveldara að átta sig á hvenær of mikil þyngd getur truflað heilsuna okkar og hvenær öllu er óhætt.
Hver verður með okkur?
Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir, lýðheilsufræðingur,sérfræðingur á sviði offitumeðferðar og yfirlæknir innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.