Lykillinn að varanlegum árangri

Ef fyrirtæki ætlar sér að starfa á árangursríkan og skilvirkan hátt til lengri og skemmri tíma þá þarf það að leysa af hendi fjögur hlutverk.
Hvenær sem eitthvert þessara fjögurra hlutverka er ekki innt af hendi eða vantar, skapast vandamál, sem eru fyrirsjáanleg, eftir því hvaða hlutverk er vanrækt.
Hver verður með okkur?
Sigvaldi Egill Lárusson, ráðgjafi hjá Hugsýn.
Sigvaldi er eigandi og ráðgjafi Hugsýnar.
Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun fyrirtækja og stofnana ásamt því að hafa á undanförnum árum starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar, innleiðingar stefnu og breytingastjórnunar.
Sigvaldi er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

Hvar verðum við
Á vefnum – í Teams