fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Er gervigreind eitthvað fyrir þig?

3. nóvember 2023 @ 09:00 - 09:45

Á Dokkufundinum verður eftirfarandi spurningum svarað á skýran og auðskiljanlegan hátt – fyrir fólk sem hefur ekki endilega svo sterkan tæknilegan bakgrunn:
  • Hvað er gervigreind og hvernig getur hún nýst í daglegum störfum? Inngangur og nokkur dæmi um hvernig við hjá Öldu nýtum gervigreind.
  • Hvað ber helst að hafa í huga við notkun og innleiðingu gervigreindar á vinnustöðum? Öryggismál, skjölun og hlutdrægni gervigreindar.

Hver verður með okkur?

Sigyn Jónsdóttir, CTO (tæknistjóri) og meðstofnandi Öldu.

Sigyn starfaði áður sem VP Customer Care hjá Men&Mice, hún var varaformaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs 2019-2023 og var formaður Ungra athafnakvenna árin 2017-2019. Sigyn er með B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. Management Science & Engineering frá Columbia-háskóla í New York.

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Upplýsingar

Dagsetn:
3. nóvember 2023
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.