Það getur reynst mörgum erfitt að ná utan um hugtakið sjálfbærni og að innleiða sjálfbærni inn í sinn rekstur. En með skilgreiningu og samhengi Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður strax auðveldara að ná utan um hugtakið og sjá hvernig markmiðin samræmast stefnu hvers fyrirtækis fyrir sig.
Heimsmarkmiðin eru leiðarvísir að sjálfbærari heimi árið 2030. Þau eru markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og hafa ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki um allan heim tileinkað sér þau. Mannvit hefur tileinkað sér Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ætlar að miðla til okkur reynslunni af þeirri vegferð.
Sandra Rán Ásgeirsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannviti
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli.