fbpx

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Markaðshugsun í öllum þáttum rekstrarins

Dokkan , Iceland

Á fundinum mun Margrét fjalla um mannauðsstjórnun, sem einn af markaðsráðum fyrirtækja og mikilvægi þess að horfa ekki fram hjá þessum þætti. Hugsunin hér er að nálgast mannauðsstjórnun út frá heildstæðari sýn og hvernig fyrirtæki geta skapað sér sérstöðu á markaði með því.

Verklag við greiningu og stýringu rekstraráhættu

Dokkan , Iceland

Á fundinum verður fjallað um verklag við greiningu og stýringu rekstraráhættu. Hvaða starfsmenn væru æskilegir þátttakendur í greiningarferlinu innan fyrirtækisins og hvernig gott er að haga ferlum áhættugreiningar og stýringar. Einnig verður komið inn á hlutverk stjórnar og æðri stjórnenda og hvernig stjórnendur geta nýtt niðurstöður áhættugreiningar í ákvarðanatöku, hvort sem hún er stefnumótandi eða […]

Lean Startup 101

Dokkan , Iceland

Lean Startup er hugmyndafræði til þess að nálgast nýsköpun, hvort sem um er að ræða þróun á nýjum fyrirtækjum (startup) eða þróun á nýjum viðskiptaeiningum/vörum í rótgrónum fyrirtækjum. Hugmyndafræðin hefur farið sigurför um heiminn og fyrsta bókin sem kom út um Lean Startup fór í 2.sæti á NYTimes metsölulistanum.

Orku- og kerfisvöktun

Dokkan , Iceland

Á fundinum verður fjallað um hvernig ICEconsult hefur þróað og byggt upp orkuvöktun sem skilar fjárhagslegum ávinningi. Einnig mun vera fjallað um Kerfisvöktun í MainManager sem er lausn við rekstur og viðhald á hita- og loftræstikerfum (hægt að aðlaga að hvaða tæknikerfi sem er).

Kynning og umræða um innleiðingu 5S í framsleiðslu Össurar

Dokkan , Iceland

Magnús mun kynna hvernig innleiðing á 5S með Kaizenverkefnum hafa tekist til. Farið verður yfir árangurinn, hvað var erfitt að yfirstíga, hvað gekk vel og hvernig gengur að viðhalda kerfinu. Viktoría mun kynna 5S og sýna dæmi úr nokkrum verkefnum hjá Össuri 2011.