fbpx

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Dokkufundur: Sálfræðileg próf

Dokkan , Iceland

Við ráðningu starfsmanns er jafnan horft til þess hve vel persónuleiki hans fellur að fyrirtækinu. Notkun persónuleikaprófa til þess að leggja mat á persónuleika umsækjenda hefur verið töluverð á undanförnum árum. Aukin notkun þeirra er talin vitnisburður um fagmensku í ráðningarferli þar sem forspá persónuleikaprófa um frammistöðu er talin góð.

IT – notendamiðuð hönnun hugbúnaðar

Dokkan , Iceland

Notendamiðuð hönnun er hugmyndafræði sem hefur vakið áhuga ört stækkandi hóps einstaklinga sem starfa á sviði upplýsingatækni og vöruþróunar. Hún er nálgun við hönnun vöru, þar sem þarfir og markmið notandans eru í hæsta forgangi.

Hvert er þitt aðalsmerki? (Personal Branding)

Dokkan , Iceland

Uppbygging á persónulegu "vörumerki" (personal branding) hefur með stjórnun og uppbyggingu á þinni eigin ímynd að gera. Það er nokkuð ljóst að hvort sem þú ert stjórnandi, sérfræðingur eða annar lykilstarfsmaður, getur þú átt mikið undir því að vita hvernig þú birtist öðrum, hvort sem það eru kollegar þínir, núverandi eða tilvonandi vinnuveitendur, viðskiptavinir eða […]

Framvirkir samningar og fl. í skugga gjaldeyrishafta

Dokkan , Iceland

Á fundinum verður fjallað á einfaldan hátt um möguleika fyrirtækja á sviði gjaldeyrisviðskipta í skugga gjaldeyrishafta. Fjallað verður um framvirka samninga á gjaldeyri og vaxtaskiptasamninga, hvort sem er í ISK eða FX og sagt frá því hvað það er sem hefur breyst, þ.e. af hverju getum við gert slíka samninga núna en gátum ekki áður?

Utanumhald skjala í gæðahandbók: Rýni, samþykki og útgáfustýring

Dokkan , Iceland

Kerfið heitir Skjalavörður og er notaðað m.a. til að auðvelda utanumhald skjala í gæðahandbók. Farið verður í helstu eiginleika Skjalavarðar sem m.a. auðvelda rýni og samþykkt skjala, útgáfustýringu og útgáfu á innraneti og uppfærslu skjala.

Verkefnastjórnun og kostnaðaráætlanir

Dokkan , Iceland

Gestur er vélaverkfræðingur með meira en 20 ára starfsreynslu í verkefnastjórnun og hönnun. Hann starfar sem verkefnastjóri hjá Mannvit hf.