Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Að leysa úr læðingi árangur einstaklinga og farsælla vinnustaða

    Dokkan , Iceland

    19.10.2012: Næstum hver sem er getur náð árangri yfir einn til tvo ársfjórðunga með því að vera á stöðugum þönum. Hins vegar er þörf á framúrskarandi stjórnanda til að hámarka möguleika teymisins og ná stöðugum og varanlegum árangri.

  • Forystusögur Dokkunnar: Brynja Guðmundsdóttir

    Dokkan , Iceland

    Dokkufundur 25.10.2012: Nú er það Brynja Guðmundsdóttir, sem segir okkur sína forystusögu, en Brynja hefur gríðarlega fjölbreytta reynslu á sviði rekstrar, upplýsingatækni, fjármála og fleira. Áður en Brynja stofnaði gagnavörsluna hafði hún m.a. gegnt stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs og innri upplýsingakerfa Skýrr hf. (nú Advania) og forstöðumanns hagdeildar hjá Símanum.

  • Mikilvægi innra eftirlits við rekstur og fjármálastjórnun

    Dokkan , Iceland

    23.10.2012: Á fundinum verður fjallað mikilvægi innra eftirlits við rekstur og fjármálastjórnun ásamt notkun staðlaðra eftirlitsaðgerða og tengsl innra eftirlits við stjórnunarreikningsskil.

  • Er hefðbundin tímastjórnun úrelt?

    Dokkan , Iceland

    Herdís leggur til að við færum okkur frá hefðbundinni tímastjórnun og verkefnalistum yfir í að auka eigin afköst og bæta frammistöðu í starfi í gegnum afrekalista og eigin orkustjórnun.

  • Dokkufundur: Stjórnun þekkingarferla

    Dokkan , Iceland

    Dokkan hefur á þessari haustönn tekið fræðslumál til umfjöllunar. Þessi fundur er framhald á því þema en fjallað verður um fræðslu- og þekkingarmenningu innan skipulagsheilda. Sjónarhorn þessa fundar verður bæði fræðilegt og raunhæft þar sem markmiðið er umræða um fagleg vinnubrögð og raunhæft verklag.