Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Afburðastjórnun; metnaður, menning og mælanleiki

    Dokkan , Iceland

    Afburðastjórnun er yfirgripsmikil og fróðleg bók um árangursríkar stjórnunarkenningar og stjórnunaraðferðir í fyrirtækjarekstri. Veitt er yfirsýn yfir ýmsar rannsóknir og kenningar á sviði afburðastjórnunar. Meðal annars er fjallað um hvað afburðastjórnun felur í sér, hvernig afburðaárangur er skilgreindur og hvaða fyrirtæki geta kallast afburðafyrirtæki. Í bókinni eru fjölmörg dæmi úr íslensku viðskiptalífi.Á fundinum veltum við […]

  • Verkefnastjórnun í Fintech

    Dokkan , Iceland

    Undanfarin misseri hefur Reiknistofa Bankanna unnið að aðlögun og innleiðingu á nýju innlána og greiðslukerfi í samstarfi við tvo af eigendum sínum og helstu viðskiptavinum, Landsbanka og Íslandsbanka.  Kerfið leysir af hólmi áratugagömul heimasmíðuð kerfi sem þjónað hafa þessum grunnþáttum fjármálaþjónustu, og eru því - eðli málsins samkvæmt - vandlega samofin í daglega vinnslu tölvukerfa […]

  • Innri markaðssetning – vinnan að baki sameiningu 3 fyrirtækja

    Dokkan , Iceland

    Nýherji, Applicon og TM Software sameinuðu krafta sína sem eitt öflugt upplýsingatækni við upphaf árs 2018 undir nafinu Origo. Unnið hafði verið að sameiningunni meðal stjórnenda samstæðunnar um nokkrun tíma en í lok maí 2017 var verkefnið kynnt fyrir starfsfólki og samhliða því voru stofnaðir þrír vinnuhópar stjórnenda og starfsfólks sem höfðu það verkefni að […]

  • Innri endurskoðun – kynningarfundur um vottanir

    Dokkan , Iceland

    Á fundinum verða kynningar þær vottanir / faggildingar, sem eru í boði hjá alþjóðasamtökunum IIA og ISACA, sem tengjast innri endurskoðun og tölvuendurskoðun. Helstu gráður sem kynntar verða eru m.a.: CIA, QIAL, CFE, CISA.Fundurinn er haldinn í samstarfi Dokkunnar og Félags um innri endurskoðun.Hverjir verða með okkur?Sérfræðingar PwC og fl.Hvar verðum við?Hjá PwC í Skógarhlíð 12, […]

  • Lean: Þetta er ekki hægt!

    Dokkan , Iceland

    Því miður þá er fullbókað á fundinn, ekkert lát er á vinsældum lean! Heiti Dokkufundarins er „Þetta er ekki hægt og sýnir hversu öflug aðferðafræði straumlínustjórnunar (LEAN) er til aukinna afkasta og umbóta án yfirvinnutíma eða aukins mannafla. Á fundinum verður tekið fyrir dæmi um viðsnúning stórs verkefnis, sem var orðið óstöðugt með of langan biðtíma umsókna og

  • Að koma til baka eftir starfsþrot – hvernig?

    Dokkan , Iceland

    Eitt mikilvægasta málefni samfélagsins í dag!Á fundinum munum við leita svara við nokkrum mikilvægum spurningum sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir þegar starfsfólk þarf að hverfa tímabundið eða alfarið úr starfi vegna starfsþrots eða kulnunar. Þarfir starfsmanna sem lenda í starfsþroti geta verið ólíkar, sumir eru frá í styttri tíma og koma til baka […]

  • Jafnlaunaferlið hjá Olís

    Dokkan , Iceland

    Vinna vegna jafnlaunavottunar skv jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 hófst formlega hjá Olís í lok janúar á þessu ári. Samhliða var ákveðið að taka til endurskoðunar frammistöðumat, einföldun starfslýsinga, endurskoðun ferla og ýmsar stefnur tengdar mannauðsmálum. Áður hafði Olís fengið gullmerki PWC vegna jafnlaunaúttektar.Olís gekk til samstarfs við ráðgjafafyrirtækið Strategíu varðandi þetta verkefni og hefur Margrét Sanders […]

  • Innivist: Flest okkar erum inni í allt að 280 daga á ári

    Dokkan , Iceland

    Já, við erum innandyra allt að 280 daga á ári - þess vegna skiptir innivistin svo miklu máli fyrir heilsu starfsfólks, vellíðan á vinnustaðnum, árangur og afköst.Hvernig getum við gert innivistina betri, heilnæmari, verðmætari og skemmtilegri? Við vitum að líðan, frammistaða og framleiðni starfsfólks felst meðal annars í góðri innivist á vinnustað.Við hugsum mikið um líkamsrækt, […]

  • Um GDPR – Deloitte

    Dokkan , Iceland

    Þann 25. maí 2018 mun ný reglugerð um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga taka gildi í Evrópu. Frá þeim degi munu fyrirtæki þurfa að sýna fram á að þau geti verndað persónugreinalegar upplýsingar einstaklinga, auk þess að vera í stakk búin til að upplýsa einstaklinga um vinnslu […]

  • Vinnustaður framtíðarinnar

    Dokkan , Iceland

    Þetta skiptir okkur öll miklu máli og ekki síður börnin okkar og barnabörn: Hvað er það sem drífur áfram breytingar á vinnustöðum framtíðarinnar? Munu vinnurými líta öðruvísi út? Mun gervigreind breyta hvernig við vinnum? Sjáum við fram á að það verði hugsað betur um velferð starfmanna?Ragnheiður ætlar að tala um þau trend sem eru í […]

  • Fintech – hvaða tækni- og lagabreytingar eru að verða í fjármálakerfinu?

    Dokkan , Iceland

    ATH. við fluttum fundinn til 31. maí - erfið fæðing en er að hafast :)Hvernig mun ný tækni, lög og ný hugsun í fjármálageiranum hafa áhrif á hina venjulegu fjölskyldu, einstaklinga, heimilin og alla almenna borgara með sín kredit- og debetkort, bankareikninga, eignir og skuldir, sem snerta okkur öll og hvernig munum við þurfa að breyta hegðun […]