Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Stjórnun forsenda í verkefnum (fer fram á ensku)

    Á vefnum

    ATH. - þessi Dokkufundur er í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélag Íslands og mun fara fram á ensku Þetta er sama gamla sagan: Þú er skipaður verkefnastjóri og er falið að vinna að metnaðarfullu, nýstárlegu, vel fjármögnuðu og stefnumótandi verkefni sem mun hafa djúpstæð áhrif á fyrirtæki þitt, viðskiptavini og hugsanlega feril þinn. Þú ert að fara […]

  • Samskiptastefna sem þriðja stoðin í stefnumótun og áætlanagerð

    Á vefnum

    Fjárhagsáætlanir eru í raun ákveðinn endahnútur í stefnumótunarferli fyrirtækja þar sem þær endurspegla hvernig þau hyggjast hrinda stefnu sinni í framkvæmd. Það sem of oft gleymist í þessu ferli er samskiptaþátturinn: að koma því skýrt til skila, sérstaklega innanhúss, hvert félagið stefnir, hvernig það ætlar að komast þangað og hvaða hlutverki starfsmenn ólíkra sviða og […]

  • Notkun spunagreindar (GenAI) – úr tilviljanakenndu spjalli í löggeng, prófuð og endurskoðanleg verkflæði.

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra um innleiðingu gervigreindarlausna, t.a.m hjá Abler og hvernig fyrirlesari dagsins, Jóhann Haukur, leggur áherslu á uppbyggingu kerfa, þar sem gervigreind lýtur ströngum prófunum og gæðaeftirliti með sjálfbætandi endurgjöf. Hann nýtir aðferðafræði sem breytir notkun spunagreindar (GenAI) úr tilviljanakenndu spjalli í löggeng, prófuð og endurskoðanleg verkflæði. Markmið hans er […]

  • Velferð á vinnustað – viðverustjórnun. Átaksverkefni hjá Kópavogsbæ

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra um átaksverkefni hjá Kópavogsbæ um lækkun veikindafjarvista og heilsueflingu starfsfólks sem var sett af stað árið 2023 og ber heitið VELFERÐ Á VINNUSTAÐ. Markmiðið með verkefninu er að draga úr fjarvistum starfsfólks og þ.a.m. veikindafjarvistum. Einnig að byggja upp enn betra starfsumhverfi sem styður við heilsu, öryggi og […]

  • Virðisdrifnar innanhúss herferðir og skilaboð til stjórnenda og starfsfólks

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra frá reynslubolta þegar kemur að því að hanna og stýra innanhúss herferðum og hvað skiptir máli þegar kemur að skilaboðum til stjórnenda og starfsfólks. Hulda vinnur nú að því, ásamt sínu fólki, að innleiða nýja stefnu hjá Eimskip, Eimskip 3.0, og mun hún deila sögum og reynslu tengt […]

  • Kaffistofan hefur rangt fyrir sér um lífeyrismál

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður rætt um algengar mýtur um lífeyrismál og hvernig forðast megi kostnaðarsöm mistök.   Hver verður með okkur? Fyrirlesari er Björn Berg Gunnarsson. Hann starfar sjálfstætt við fjármálafræðslu. Sjá meira um Björn og hans þjónustu inn á bjornberg.is   Hæfniþættir Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að […]

  • Lítil skref skipta máli: Heilsueflandi vinnustaður í verki

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig vinnustaður getur stutt markvisst við heilsu og vellíðan starfsfólk með raunhæfum aðgerðum í daglegu starfi. Sérstaklega verður fjallað um áhrif kyrrsetu, hreyfingar  og vinnuumhverfis á líðan starfsfólks og einfaldar leiðir sem geta nýst bæði litlum og stórum vinnustöðum – því lítil skref skipta máli og geta skapað stórar […]

  • Hvað er hæfni?

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi er því velt upp hvernig við getum verið viss um að ráða hæfasta einstaklinginn og hvernig við getum nýtt hæfileika fólks til fulls. Í erindinu verður fjallað um norska sjónvarpsseríu, þátttökureglur alþjóða-skíðasambandsins fyrir stórmót og hvað almennt þykir eftirsóknarvert, æskilegt, sanngjarnt, árangursríkt og áhugavert. Markmiðið er að vekja upp spurningar um hefðbundin […]

  • Stjórnunartaktur – stjórnunarhjólið – verkfæri í árangursríkri stjórnun

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stjórnunartakt sem samræmdan hrynjanda í stjórnun. Farið verður yfir hvernig stjórnunartaktur getur verið hagnýtt verkfæri við að styrkja stjórnunarhætti með því að auka samræmi, gagnsæi og trygga eftirfylgni áætlana stjórnenda. Samræmdur taktur skapar einnig ramma sem styður við stjórnendur með ólíka styrkleika og reynslu og getur þannig stutt við […]

  • Frá spjallmenni í starfsmann – þróun gervigreindar síðustu mánuði

    Á vefnum

    Gervigreindin hefur tekið stór stökk síðustu mánuði og upplýsingar úreldast hratt. Á þessum Dokkufundi verður farið yfir þá þróun sem skiptir mestu máli núna: agentic AI sem framkvæmir verkefni sjálfstætt, gríðarlegar framfarir í skrifstofuverkefnum eins og Excel og PowerPoint. Við fáum líka að kynnast Magnúsi — gervigreindaraðstoðarmanni fyrirlesarans, en Magnús les tölvupóst, skrifar LinkedIn-færslur og […]

  • BEZTA námskeið: Tilfinningagreint teymi

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík, Iceland

    Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningar: https://dokkan.is/tilfinningagreint-teymi/    

    34.900kr.