Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Áhættustjórnun – forsenda stöðugs reksturs

    Á vefnum

    Markmið með erindinu er að kynna grunninn að skipulagðri og samræmdri áhættustjórnun, sýna hvers vegna hún er lykilatriði fyrir rekstur og ákvarðanatöku, og fara yfir hvernig hægt er að innleiða og starfrækja áhættustjórnunarkerfi sem styður við markmið og öryggi starfsheilda. Meðal þess sem farið verður yfir er: Hvað er áhættustjórnun (frá hugtaki til aðgerða). Helstu […]

  • Gagnrýnin hugsun sem hæfni

    Á vefnum

    Gagnrýnin hugsun er einn þeirra hæfniþátta sem hafa orðið sífellt meira lykilatriði fyrir menntun og atvinnulíf, ekki síst vegna tilkomu sjálfvirknivæðingar og þróunar skapandi gervigreindar. Sú hæfni að geta beitt gagnrýninni hugsun verður sífellt verðmætari í framtíðinni þar sem tækniþróun mun halda áfram að breyta vinnumarkaðnum og margs konar leikni og færni færast yfir á svið […]

  • Gervigreind neyðir okkur til að endurhugsa verðmætasköpun og rekstur

    Á vefnum

    Gervigreind er ekki næsta skref í stafrænni þróun skipulagsheilda heldur felur í sér mun róttækari umbreytingu á framtíðar verðmætasköpun og rekstri. Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig alþjóðlegir stjórnendur eru að endurhugsa stefnu sinna fyrirtækja, aukna fjárfestingu þeirra í innleiðingu gervigreindar, helstu áskoranir og hvaða lærdóm íslenskir stjórnendur geta dregið.   Hver verður með okkur? […]

  • BEZTA námskeið: Leiðbeinandi samtöl

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík, Iceland

    STAÐNÁMSKEIÐ Leiðbeinandi samtöl – tökum strax á málunum. Um námskeiðið Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 27. janúar, kl. 9-12. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðu atriði leiðbeinandi samtala og hvernig dæmigert samtal fer fram frá A til Ö. Fjallað verður um hlutverk og viðhorf stórnandans og hvernig best sé að taka á óæskilegri hegðun á formlegan […]

  • Katar Norðursins – er þetta ekki bara gott módel?

    Á vefnum

    Á þessum fundi ræðum við um fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi, hvert hefur þróunin fært okkur undanfarin ár og hvert stefnum við – sem hagkerfi, samfélag eða einstaklingar?   Hver verður með okkur? Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur. Hún hefur unnið í málefnum innflytjenda á Íslandi í meira en 20 ár, þ.m.t. sem formaður […]

  • F*ck it og önnur fyrirbæri fyrir leiðtoga

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi ætlar reyndur stjórnandi að deila þeim fyrirbærum sem hafa hjálpað henni að halda bæði skýrleika og skapi – án þess að hætta að vera leiðtogi.   Hver verður með okkur? Valgerður Hrund Skúladóttir. Hún hefur starfað í leiðtogahlutverkum lengur en hún getur munað. Hún hefur séð trend koma og fara, stjórnunarlíkön koma […]

  • Lykillinn að varanlegum árangri

    Á vefnum

    Ef fyrirtæki ætlar sér að starfa á árangursríkan og skilvirkan hátt til lengri og skemmri tíma þá þarf það að leysa af hendi fjögur hlutverk. Hvenær sem eitthvert þessara fjögurra hlutverka er ekki innt af hendi eða vantar, skapast vandamál, sem eru fyrirsjáanleg, eftir því hvaða hlutverk er vanrækt. Hver verður með okkur? Sigvaldi Egill […]

  • Tilfinningagreind í starfi

    Á vefnum

    Tilfinningagreind er einn mikilvægasti hæfileiki starfsfólks í síbreytilegu vinnuumhverfi. Hún mótar hvernig við eigum samskipti, tökum ákvarðanir, bregðumst við álagi og vinnum saman með ólíku fólki. World Economic Forum hefur skilgreint tilfinningagreind sem einn af lykilhæfileikum framtíðarinnar – hæfileika sem verður sífellt mikilvægari eftir því sem tæknivæðing og gervigreind taka stærra hlutverk í störfum okkar. Í þessari 30 mínútna […]

  • Gögn – til valdeflingar starfsfólks

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi verður tekið á kjarna þess hvers vegna það skiptir máli að veita starfsfólki aðgang að gögnum og getu til að deila þeim á skilvirkan hátt — ekki sem tæknimarkmið, heldur sem vegferð í að byggja upp gagnadrifna menningu og skilvirkari ákvarðanatöku. Kynningin snýr að því hvernig fyrirtæki geta losað sig úr sjálfheldu […]

  • Stjórnun forsenda í verkefnum (fer fram á ensku)

    Á vefnum

    ATH. - þessi Dokkufundur er í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélag Íslands og mun fara fram á ensku Þetta er sama gamla sagan: Þú er skipaður verkefnastjóri og er falið að vinna að metnaðarfullu, nýstárlegu, vel fjármögnuðu og stefnumótandi verkefni sem mun hafa djúpstæð áhrif á fyrirtæki þitt, viðskiptavini og hugsanlega feril þinn. Þú ert að fara […]

  • Samskiptastefna sem þriðja stoðin í stefnumótun og áætlanagerð

    Á vefnum

    Fjárhagsáætlanir eru í raun ákveðinn endahnútur í stefnumótunarferli fyrirtækja þar sem þær endurspegla hvernig þau hyggjast hrinda stefnu sinni í framkvæmd. Það sem of oft gleymist í þessu ferli er samskiptaþátturinn: að koma því skýrt til skila, sérstaklega innanhúss, hvert félagið stefnir, hvernig það ætlar að komast þangað og hvaða hlutverki starfsmenn ólíkra sviða og […]

  • Notkun spunagreindar (GenAI) – úr tilviljanakenndu spjalli í löggeng, prófuð og endurskoðanleg verkflæði.

    Á vefnum

    Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra um innleiðingu gervigreindarlausna, t.a.m hjá Abler og hvernig fyrirlesari dagsins, Jóhann Haukur, leggur áherslu á uppbyggingu kerfa, þar sem gervigreind lýtur ströngum prófunum og gæðaeftirliti með sjálfbætandi endurgjöf. Hann nýtir aðferðafræði sem breytir notkun spunagreindar (GenAI) úr tilviljanakenndu spjalli í löggeng, prófuð og endurskoðanleg verkflæði. Markmið hans er […]